Sleppa yfir í upplýsingar um vöru
1 af 7

My Store

Mikilvægt rusl

Mikilvægt rusl

Venjulegt verð 6.990 ISK
Venjulegt verð Söluverð 6.990 ISK
Útsala Uppselt
Með skatti.

Daginn sem forsætisráðherra Íslands biður Guð að blessa þjóðina finnur öskukallinn Gómur Barðdal afskorið mannsnef í ruslatunnu við glæsihýsi í Þingholtunum. Skömmu síðar er frændi hans, seinheppna skáldið Geir Norðann, ráðinn sem ljóðakennari inn á þetta sama heimili. Hver á þetta nef? Hvernig endaði það í ruslatunnu?

Meðan íslenskt þjóðfélag gengur af göflunum ráðast þeir frændur í að leysa ráðgátuna um nefið ásamt lúgustelpunni Zipo, Kötu bílasala, Diddu öskukellingu, fyrrverandi fangaverði ársins, og fleiri ógleymanlegum persónum.

Leitin að eigandanum leiðir söguhetjurnar inn í meiriháttar samsæri sem teygir anga sína upp í efstu lög íslensks samfélags.

Mikilvægt rusl er bráðfyndin og grípandi ástar- og spennusaga sem leiftrar af frásagnargleði.

TILBOÐ FYRIR BÓKAKLÚBBA: 20% afsláttur ef 8 eintök eða fleiri eru keypt. Heimsókn frá höfundi í klúbbinn fylgir með að kostnaðarlausu. 

„Þessi bók er allt sem mig langar að vera í lífinu - leikandi létt og fyndin á yfirborðinu, djúpvitur, heimspekileg og gagnrýnin undir niðri. Beint í mark!“

Dóri DNA
Skoða allar upplýsingar