Halldór Armand Ásgeirsson er íslenskur rithöfundur og samfélagsrýnir sem hefur sent frá sér fimm skáldsögur og eitt ritgerðasafn. Hann hefur einnig skrifað fjölda pistla fyrir útvarp og dagblöð.
Nýjasta skáldsaga hans, Mikilvægt rusl, er bráðskemmtileg ástar- og spennusaga.
„Þessi bók er allt sem mig langar að vera í lífinu - leikandi létt og fyndin á yfirborðinu, djúpvitur, heimspekileg og gagnrýnin undir niðri. Beint í mark!“ - Dóri DNA