Daginn sem forsætisráðherra Íslands biður Guð að blessa þjóðina finnur öskukallinn Gómur Barðdal afskorið mannsnef í ruslatunnu við glæsihýsi í Þingholtunum. Skömmu síðar er frændi hans, seinheppna skáldið Geir Norðann, ráðinn sem ljóðakennari inn á þetta sama heimili. Hver á þetta nef? Hvernig endaði það í ruslatunnu?
Mikilvægt rusl: Persónulegt eintak með handskrifuðu bréfi frá höfundi - Takmarkað upplag
Mikilvægt rusl: Persónulegt eintak með handskrifuðu bréfi frá höfundi - Takmarkað upplag
Tryggðu þér einstaka útgáfu af Mikilvægu rusli sem inniheldur persónulegt handskrifað bréf úr dagbók höfundar, stílað á viðtakanda, ásamt ljóði úr bókinni. Frábær fyrir bókaunnendur, safnara og alla sem vilja mynda dýpri tengsl við verkið og höfundinn. TAKMARKAÐ UPPLAG!
*Ef þetta er gjöf sendu mér þá línu hér að neðan um hver á að fá hana.
Meðan íslenskt þjóðfélag gengur af göflunum ráðast þeir frændur í að leysa ráðgátuna um nefið ásamt lúgustelpunni Zipo, Kötu bílasala, Diddu öskukellingu, fyrrverandi fangaverði ársins, og fleiri ógleymanlegum persónum.
Leitin að eigandanum leiðir söguhetjurnar inn í meiriháttar samsæri sem teygir anga sína upp í efstu lög íslensks samfélags.
Mikilvægt rusl er bráðfyndin og grípandi ástar- og spennusaga sem leiftrar af frásagnargleði.
„Þessi bók er allt sem mig langar að vera í lífinu - leikandi létt og fyndin á yfirborðinu, djúpvitur, heimspekileg og gagnrýnin undir niðri. Beint í mark!“